Liverpool hafnaði að kaupa sóknarmanninn Marcos Llorente frá Real Madrid í sumar.
Þetta segir frændi hans og umboðsmaður, Julio Llorente en hann var til sölu áður en Atletico Madrid blandaði sér í málið.
Atletico tókst að tryggja sér þennan öfluga leikmann sem spilaði 12 deildarleiki fyrir Real á síðustu leiktíð.
,,Ég hafði samband við nokkur félög og sagði þeim frá stöðunni og frá samtalinu sem Marco og Zinedine Zidane áttu,“ sagði Llorente.
,,Eitt af þeim liðum var Liverpool en þeir þurftu ekki að styrkja þessa stöðu og það var ekki númer eitt.“
,,Atletico var það lið sem reyndi mest og þeir sannfærðu okkur. Ég held að við höfum valið rétt.“