Brighton hefur gengið frá kaupum á Leandro Trossard frá Genk í Belgíu. Hann gerir fjögurra ára samnning.
Brighton greiðir 18 milljónir punda fyrir Trossard sem er 23 ára gamall.
Trossard er sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur heillað marga í Belgíu. ,,Við erum ánægðir með að fá Trossard til félagsins, hann getur gefið okkur mikið,“ sagði Graham Potter, stjóri Brighton.
,,Hann er sóknarsinnaður leikmaður, hann var öflugur með Genk í fyrra er liðið vann deildina.“
Gary Potter var að taka við Brighton en félagið vill ná meiri árangri en að berjast við falldrauginn.