Tottenham er við það að kaupa sinn fyrsta leikmann í eitt og hálft ár, Jack Clarke frá Leeds er að ganga í raðir félagsins.
Sky Sports, segir frá þessu. Viðræður félaganna hafa borið árangur síðustu daga.
Clarke er 18 ára gamall kantmaður en Tottenham, greiðir 8,5 milljónir punda fyrir hann. Sú upphæð gæti síðan hækkað, eftir frammistöðu hans og Tottenham.
Tottenham hafði áhuga á þessum unga pilti í janúar, hann verður fyrsti leikmaðurinn sem félagið fær í sumar.
Verið er að klára samninga félaganna á milli, áður en Clarke getur gengist undir læknisskoðun. Clarke lék 25 leiki með Leeds í fyrra, á hans fyrsta tímabili.