KA 3-4 Víkingur R.
0-1 Guðmundur Andri Tryggvason(7′)
1-1 Elfar Árni Aðalsteinsson(10′)
1-2 Erlingur Agnarsson(37′)
2-2 Alexander Groven(51′)
2-3 Alexander Groven(sjálfsmark, 63′)
2-4 Ágúst Eðvald Hlynsson(víti, 67′)
3-4 Elfar Árni Aðalsteinsson(89′)
Það fór fram stórkostlegur leikur í Pepsi Max-deild karla í kvöld er lið KA og Víkings R. áttust við.
Það var boðið upp á sjö marka leik á Greifavelli á Akureyri en það voru Víkingar sem höfðu loks betur.
Víkingar voru með 2-1 forystu eftir fyrri hálfleik en snemma í þeim síðari jafnaði Alexander Groven fyrir KA.
Um 12 mínútum seinna skoraði Groven svo sjálfsmark sem kom Víkingum aftur yfir.
Ágúst Eðvald Hlynsson bætti svo við fjórða marki Víkinga áður en Elfar Árni Aðalsteinsson lagaði stöðuna fyrir KA undir lokin en það dugði ekki til. Lokastaðan, 4-3 fyrir Víkingum.