Didier Drogba hefur gefið sterklega í skyn að Frank Lampard sé að taka við liði Chelsea á Englandi.
Lampard er líklegastur til að taka við keflinu á Stamford Bridge en Maurizio Sarri hefur yfirgefið félagið.
Lampard er ekki reyndur stjóri en hann stýrði Derby County á síðustu leiktíð og náði góðum árangri.
Drogba svaraði spurningu aðdáanda á Twitter í gær þar sem hann var spurður út í það hver væri besti kosturinn fyrir Chelsea.
,,Sá sem er í umræðunni þessa stundina – Frank Lampard. Slakið á, slakið á!“ sagði Drogba.