Í gær var greint frá því að Lee Bowyer væri hættur sem knattspyrnustjóri Charlton á Englandi.
Charlton gaf út tilkynningu þar sem greint var frá því að félagið hefði ekki náð samkomulagi við Bowyer um nýjan samning.
Degi seinna gaf félagið út aðra tilkynningu þar sem talað er enn frekar um mál Bowyer.
Charlton hefur nú staðfest það að Bowyer hafi skrifað undir eins árs samning við Charlton og mun því stýra liðinu á næstu leiktíð.
Bowyer var við stjórnvölin á leiktíðinni sem var að ljúka og kom Charlton aftur upp í næst efstu deild.