Antonio Conte var búinn að samþykkja það að taka við liði Roma á Ítalíu áður en hann sagði já við Inter Milan.
Þetta segir Francesco Totti en hann var í stjórn Roma áður en hann ákvað að segja skilið við félagið í gær.
Conte var án starfs í heilt ár en hann var rekinn frá Chelsea á síðasta ári þar sem hann vann í tvö ár.
Hann var samkvæmt Totti búinn að samþykkja að taka við Roma áður en Inter blandaði sér í málið.
,,Ég ræddi við Antonio Conte og hann var búinn að segja já við Roma. Svo fór hann til Inter,“ sagði Totti.