Úrúgvæ byrjar Copa America mótið gríðarlega vel en liðið spilaði við Ekvador í fyrstu umferð riðlakeppninnar í gær.
Úrúgvæ var miklu sterkari aðilinn í 4-0 sigri en Ekvador missti þó mann af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik.
Edinson Cavani skoraði annað mark Úrúgvæ í leiknum en það gerði hann með laglegri klippu.
Cavani skoraði mark sitt á 33. mínútu leiksins og fljótlega eftir það bætti Luis Suarez við öðru fyrir þá bláklæddu.
Mark Cavani var afar laglegt eins og má sjá hér fyrir neðan.
What a goal cavani ! pic.twitter.com/5RjUvOSmHJ
— Ibrahim Nageeb (@ibrahimnageeb87) 16 June 2019