Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, gæti farið sömu leið og miðjumaður félagsins James Rodriguez.
Búist er við að Bale yfirgefi lið Real í sumar en liðið fékk til sín Eden Hazard frá Chelsea.
Bale er samningsbundinn til ársins 2022 en nú er talað um að Real ætli að reyna að lána stórstjörnuna.
Bayern Munchen ku vera að skoða það að fá Bale frá Real samkvæmt fjölmiðlum í Þýskalandi.
James lék með Bayern á síðasta tímabili á láni en þótti ekki standast væntingar.