Nasser Al-Khelaifi, eigandi Paris Saint-Germain, hefur varað stórstjörnur félagsins við fyrir næstu leiktíð.
Al-Khelaifi sendi opinber skilaboð til leikmanna á borð við Neymar og Marco Verratti en þeir eiga það til að missa sig í fjörinu utan vallar.
Nú er hins vegar komið að því að þeir þurfi að breyta hegðun sinni annars eru dyrnar hjá Al-Khelaifi opnar.
,,Leikmenn þurfa að taka meiri ábyrgð en áður. Þetta verður að breytast verulega,“ sagði eigandinn.
,,Þeir þurfa nú að vinna meira og vinna meira. Þeir eru ekki hérna til að skemmta sér.“
,,Ef þeir samþykkja það ekki þá eru dyrnar opnar. Bless! Ég vil ekki einhverja stjörnustæla hérna.“