Luis Suarez, leikmaður Barcelona, var mjög sorgmæddur eftir seinni leik liðsins við Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Suarez lék með Barcelona sem tapaði 4-0 gegn Liverpool á Anfield eftir að hafa unnið fyrr leikinn, 3-0 á Spáni.
Suarez skammaðist sín verulega eftir það tap og hafði vildi varla fara úr húsi.
,,Ég upplifði verstu augnablik lífs míns eftir að hafa snúið aftur til Barcelona, það og eftir HM 2014,“ sagði Suarez.
,,Mig langaði til að hverfa. Ég vildi ekki keyra börnin í skólann, það gátu allir séð að ég væri ekki í lagi.“
,,Það komu dagar þar sem mig langaði ekki til að gera neitt, þetta var gríðarlega erfitt.“