Sky Sports greinir frá því í kvöld að Manchester United ætli að fá varnarmanninn Aaron Wan-Bissaka í sumar.
Wan-Bissaka er efnilegur bakvörður Crystal Palace en hann stóð sig frábærlega á síðustu leiktíð.
Samkvæmt Sky hafnaði Palace 40 milljóna punda tilboði frá United í leikmanninn.
United gefst hins vegar ekki upp og ætlar að hækka boð sitt í von um að Palace samþykki.
Viðræðurnar eru enn í gangi og er þessi nýi enski landsliðsmaður sagður opinn fyrir því að taka skrefið á Old Trafford.