Sviss 0-0 England (England vann eftir vítakeppni)
Enska landsliðið hafnaði í þriðja sæti Þjóðadeildar umdeildu sem klárast í bili í dag.
England og Sviss spiluðu um þriðja sætið á Estadio Dom Afonso vellinum eftir að hafa dottið úr leik í undanúrslitum.
Það eru Portúgal og Holland sem spila í úrslitaleiknum sem fer fram síðar í kvöld.
Það var engin brjáluð skemmtun í leiknum um þriðja sætið en England vann að lokum í vítakeppni eftir framlengdan leik.