Manchester United ku hafa gefist upp á því að fá Jadon Sancho og Declan Rice í sumar. Mirror segir frá.
Sagt er að Sancho og Rice hafi verið ofarlega á lista Ole Gunnar Solskjær, sem vill sækja unga breska leikmenn í sumar.
Sú staðreynd að United missti af Meistaradeildarsæti gerir Solskjær erfiðara fyrir.
Sancho er í góðum málum hjá Borussia Dortmund og mun því ekki færa sig um set í sumar, ef marka má Mirror.
Rice er svo að mati United helst til of dýr miðað hvað hann hefur afrekað hingað til.