Það ætlar ekkert að ganga hjá liði ÍBV í Pepsi Max-deild karla en liðið spilaði sinn sjötta leik í sumar í kvöld.
ÍBV heimsótti KA í sjöttu umferð og þurfti að sætta sig við 2-0 tap á Akureyri.
Daníel Hafsteinsson og Nökkvi Þeyr Þórisson gerðu mörk KA sem skilja ÍBV eftir á botninum með tvö stig.
Fyrr í dag áttust þá við HK og Grindavík en þeim leik lauk með markalausu jafntefli í Kórnum.
KA 2-0 ÍBV
1-0 Daníel Hafsteinsson(76′)
2-0 Nökkvi Þeyr Þórisson(81′)
HK 0-0 Grindavík