Jose Mourinho, fyrrum stjóri Manchester United og Chelsea, er með samningstilboð í höndunum.
Þetta segir Chris Sutton, fyrrum leikmaður Celtic og sparkspekingur BT Sport en það er hans fyrrum félag sem vill ráða Mourinho.
Celtic leitar sér að nýjum stjóra fyrir næsta tímabil en ólíklegt þykir að Neil Lennon haldi áfram.
Mourinho hefur verið án félags síðan í desember er hann var rekinn frá Manchester United.
Celtic hefur undanfarin ár verið langbesta lið Skotlands og er óvíst hvort Mourinho vilji taka þessa áskorun að sér.