Manchester City 6-0 Watford
1-0 David Silva(26′)
2-0 Raheem Sterling(38′)
3-0 Kevin de Bruyne(61′)
4-0 Gabriel Jesus(61′)
5-0 Raheem Sterling(81′)
6-0 Raheem Sterling(87′)
Manchester City vann þrennuna á Englandi á þessu tímabili en það er í fyrsta sinn sem það gerist í karlaflokki.
City hafði tryggt sér deildarbikarinn og deildarmeistaratitilinn fyrir leik gegn Watford í enska bikarnum.
Úrslitaleikurinn sjálfur fór fram á Wembley í dag og var aldrei spurning um sigurvegara.
City valtaði algjörlega yfir Watford og vann að lokum sannfærandi 6-0 sigur.
Raheem Sterling átti stórleik fyrir City og skoraði þrennu í sigrinum.