Ruben-Loftus Cheek sleit hásin í æfingaleik Chelsea í Bandaríkjunum í nótt, hann verður frá í meira en 200 daga.
Loftus Cheek og félagar mættu New England Revolution í æfingaleik sem Maurizio Sarri, vildi ekki spila.
Miðjumaðurinn öflugi sleit hásin þar og verður ekki með í úrslitum Evrópudeildarinnar. Hann mun svo missa af fyrri hlutanum á næstu leiktíð.
Loftus Cheek hefur verið öflugur í liði Chelsea eftir áramót og er mikil blóðtaka fyrir liðið.
Chelsea heldur aftur til Englands á næstu dögum og fer að undirbúa leikinn gegn Arsenal í Evrópudeildinni.