Viðar Örn Kjartansson komst á blað fyrir lið Hammarby í kvöld sem spilaði við Östersund í Svíþjóð.
Viðar hefur verið heitur fyrir framan markið undanfarið og var að skora sitt fjórða deildarmark.
Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði annað mark Hammarby í dag í öruggum 4-0 heimasigri.
Hammarby fer mjög vel af stað í deildinni og er í öðru sæti þegar níu umferðir eru búnar.
Liðið er með jafn mörg stig og topplið Malmö sem á þó leik til góða.