Domenico Berardi, leikmanni Sassuolo, dreymir um að spila fyrir enska stórliðið Liverpool.
Þetta staðfesti Berardi í dag en hann er orðaður við brottför og er AC Milan talið hafa áhuga á honum.
Framherjinn hefur gert 56 mörk í 186 leikjum fyrir Sassuolo en hann er 24 ára gamall í dag.
,,Ef það kemur tilboð frá Milan eða frá öðru félagi þá mun ég fara yfir það með mínu liðinu,“ sagði Berardi.
,,Ef ég heyri að þetta sé rétta tilboðið til að taka á þessum tíma þá segi ég við Sassuolo að ég muni samþykkja.“
,,Ef ég fengi að ráða þá myndi ég spila í Liverpool. Að breyta til er erfitt en það hræðir mig ekki lengur, ég myndi gera það.“