Valur 1-2 ÍA
0-1 Óttar Bjarni Guðmundsson(21′)
0-2 Arnar Már Guðjónsson(45′)
1-2 Gary Martin(víti, 57′)
ÍA vann frábæran sigur í Pepsi Max-deild karla í kvöld er liðið heimsótti Íslandsmeistara Vals á Origo-völlinn.
Valur hefur byrjað mótið virkilega illa og er nú með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðir deildarinnar.
ÍA átti sigurinn í raun skilið á Hlíðarenda í kvöld en liðið hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.
Staðan var 2-0 eftir fyrri hálfleikinn en í þeim síðari minnkaði Gary Martin muninn fyrir heimamenn úr vítaspyrnu.
ÍA er nú með sjö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í öðru sæti en Valsmenn sitja í því tíunda með eitt.