Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, gæti yfirgefið félagið ef liðinu tekst að vinna Meistaradeildina í ár.
Argentínumaðurinn greinir sjálfur frá þessu í dag en Tottenham spilar við Ajax á morgun.
Um er að ræða seinni undanúrslitaleik liðsins en Ajax vann fyrri leikinn 1-0 á heimavelli enska liðsins.
,,Að vinna Meistaradeildina, það væri frábært er það ekki? Að loka þessum fimm ára kafla og fara heim,“ sagði Pochettino.
,,Að vinna hana með Tottenham að svo stöddu, á þessari leiktíð, ég held að ég þurfi að fara öðruvísi að hlutunum í framtíðinni.“