Leikmenn Manchester United voru hissa í gær fyrir leik liðsins við grannana í Manchester City.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, hélt stuttan fund og var með létta æfingu í gær fyrir stórleikinn um kvöldið.
Það sem vakti athygli er að rúta United var lögð fyrir utan the Cliff sem var áður æfingasvæði félagsins.
Cliff æfingasvæðið hefur ekki verið notað mikið af aðalliði félagsins síðan Carrington æfingasvæðið varð tilbúið árið 2000.
Solskær vonaðist þó eftir því að nýtt umhverfi myndi hjálpa stjörnum liðsins að komast yfir 4-0 tap gegn Everton um helgina.
Samkvæmt enskum miðlum voru þó flestir leikmenn liðsins undrandi á þessari ákvörðun Norðmannsins.
United tapaði leiknum gegn City síðar um kvöldið en Englandsmeistararnir höfðu betur, 2-0.