Bæði Paris Saint-Germain og Arsenal hafa áhuga á að semja við miðjumanninn öfluga Abdoulaye Doucoure.
Enskir miðlar greina frá þessu en Doucoure hefur staðið sig afar vel með Watford á tímabilinu sem og í fyrra.
Samkvæmt nýjustu fréttum eru bæði Arsenal og PSG að sýna leikmanninum áhuga og vilja fá hann í sumar.
Everton er þó einnig áhugasamt en þjálfari liðsins er Marco Silva sem vann með miðjumanninum hjá Watford.
Unai Emery, stjóri Arsenal, sér Doucoure sem mögulegan arftaka Aaron Ramsey sem er á förum í sumarglugganum.