Virgil van Dijk hefur verið kjörinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar af leikmönnum deildarinnar, þetta verður kynnt á morgun.
Ensk blöð hafa hins vegar komist að þessu og segir Daily Mail frá, hann hafði betur gegn Raheem Sterling.
Van Dijk hefur bundið vörnina saman hjá Liverpool og verið magnaður. Sterling hefur einig átt gott ár.
Liverpool og Manchester City eru að berjast um sigur í deildinni þegar stutt er eftir af mótinu.
Sadio Mane, Sergio Aguero, Bernardo Silva og Eden Hazard voru einnig tilnefndir.