Ef marka má ensk blöð í dag fær Ole Gunnar Solskjær, talsvert fjármagn til að breyta og bæta lið Manchester United.
Ensk götublöð segja að Solskjær fái 200 milljónir punda til að reyna að koma United aftur á toppinn.
Solskjær tók tímabundið við United í desember, hann fékk svo starfið til framtíðar í mars. Síðan þá hefur hallað undan fæti.
Solskjær fær tækifæri í sumar til að fá inn nýja leikmenn og losa sig við þá sem hann telur ekki nothæfa.
Ensk blöð segja að Solskjær vilji fá hægri bakvörð í sumar en Antonio Valencia, fer frítt í sumar. Aaron Wan-Bissaka bakvörður Crystal Palace er orðaður við liðið.
Wan-Bissaka hefur átt gott tímabil en einnig er Kieran Trippier nefndur til sögunnar, hann hefur verið öflugur með Tottenham síðustu ár.