fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433

Sturluð tölfræði City sem gæti skilað titlinum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 24. apríl 2019 21:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City er skrefi nær því að vinna ensku úrvalsdeildina, annað árið í röð undir stjórn Pep Guardiola, eftir sigur á Manchester United. Öll hjól eru farin undan vagninum sem Ole Gunnar Solskjær, stýrir. Manchester United er í frjálsu falli.

Markalaust var í hálfleik en eftir ágætis byrjun Manchester United, var City sterkari aðilinn. Manchester United gaf hressilega eftir í síðari hálfleik og City gekk á lagið, Bernardo Silva skoraði fyrsta mark leiksins. Luke Shaw bakkaði frá honum og David De Gea gerði illa í markinu.

Leroy Sane bætti svo við eftir skyndisókn en aftur, var De Gea í markinu, slakur. 0-2 forysta City og sigurinn klár.

Tölfræði Manchester City í síðustu leikjum er hreint mögnuð, ellefu leikir, ellefu sigrar og liðið hefur aldrei verið undir í leik.

City er komið á topp deildarinnar þegar þrír leikir eru eftir, liðið á leiki við Burnley, Leicester og Brighton eftir. Liðið er stigi á undan Liverpool sem á eftir að mæta Huddersfield, Newcastle og Wolves.

Tölfræði:
Leikir – 11
Mörk skoruð – 26
Mörkuð á sig – 3
Mínútur í forystu – 662
Mínútur sem liðið er undir – 0

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Í gær

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“