Tottenham vann gríðarlega mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Brighton.
Tottenham gat komist þremur stigum á undan Chelsea í töflunni með sigri í kvöld og styrkt stöðu sína í þriðja sætinu.
Aðeins eitt mark var skorað í leik kvöldsins en það gerði Christian Eriksen fyrir heimamenn.
Þetta reyndist ansi tæpt hjá Tottenham en mark Eriksen kom á 89. mínútu og reyndist það nóg til að tryggja þrjú stig.
Á sama tíma áttust við Watford og Southampton en leikið var á Vicarage Road, heimavelli Watford.
Shane Long kom Southampton yfir í leik kvöldsins en hann skoraði mark eftir aðeins sjö sekúndur sem var fljótasta mark í sögu úrvalsdeildarinnar.
Staðan var 1-0 þar til á 90. mínútu leiksins er Andre Gray jafnaði metin fyrir Watford og lokastaðan, 1-1.
Tottenham 1-0 Brighton
1-0 Christian Eriksen(89′)
Watford 1-1 Southampton
0-1 Shane Long(1′)
1-1 Andre Gray(90′)