Andrea Pirlo, fyrrum leikmaður Juventus, telur að koma Cristiano Ronaldo til Juventus hafi ekki hjálpað sóknarmanninum Paulo Dybala.
Eftir komu Ronaldo hefur Dybala þurft að sætta sig við bekkjarsetu og þarf einnig að spila út úr stöðu.
Pirlo segir að það sé undir Argentínumanninum komið að finna lausn á þessu vandamáli en hann hefur aðeins skorað fimm mörk í deildinni á leiktíðinni.
,,Mikilvægi Dybala hefur lækkað og það er ekki Juventus að kenna. Ég held að þetta sé andlegt,“ sagði Pirlo.
,,Þegar þú spilar með leikmanni eins og Cristiano Ronaldo ættirðu að vera ánægður, ánægður að fá að læra af svona sigurvegara.“
,,Dybala þarf að skilja það að hann er að spila fyrir Juventus en ekki eitthvað meðallið.“
,,Allir reyna að hjálpa honum en hann verður sjálfur að hlaða batteríin, hann verður að vera sá leikmaður sem hann var áður.“