Það er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 11:30 þegar Manchester City tekur á móti Tottenham.
City má ekki misstíga sig þar sem liðið er í harðri baráttu um sigur í deildinni.
City vann leik liðanna í Meistaradeildinni í vikunni 4-3 en féll úr leik á útivallarmörkum.
Hér að neðan eru byrjunarliðin:
Manchester City: Ederson, Walker, Stones, Laporte, Zinchenko, Gundogan, De Bruyne, Foden, Bernardo, Sterling, Aguero
Tottenham: Gazzaniga, Foyth, Sanchez, Alderweireld, Vertonghen, Davies, Dier, Alli, Eriksen, Moura, Son.