Manchester United er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir leik við spænska stórliðið Barcelona í gær. Verkefni United var alltaf að fara verða erfitt í gær en liðið tapaði fyrri leiknum 1-0 á heimavelli.
Lionel Messi var í stuði í leiknum og skoraði tvö mörk fyrir heimamenn sem unnu sannfærandi 3-0 sigur. Philippe Coutinho bætti við þriðja marki Börsunga sem vann einvígið samanlagt, 4-0.
United snéri aftur til Manchester í nótt og það var þungt yfir mannskapnum, eðlilega. Liðið langt á eftir bestu liðum Evrópu.
Sir Alex Ferguson var með í för og honum var ekki skemmt, að sjá félagið sitt niðurlægt.
Myndir af þessu eru hér að neðan.