Það fór fram einn leikur í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld er lið Atalanta fékk Empoli í heimsókn.
Atalanta berst um Evrópusæti fyrir næstu leiktíð og á enn möguleika á að komast í Meistaradeildina.
Empoli berst þá fyrir lífi sínu í efstu deild og er nú tveimur stigum frá öruggu sæti eftir markalaust jafntefli í kvöld.
Það er í raun ótrúlegt að þessi leikur hafi endað markalaus en Atalanta var miklu sterkari aðilinn.
Atalanta átti 47 skot að marki Empoli og fóru 18 af þeim á rammann en inn vildi boltinn ekki.
Á móti átti Empoli aðeins þrjár marktilraunir og varði markvörður liðsins 17 skot sem er mögnuð tölfræði.
47 shots.
18 on target.
It finished 0-0. ? pic.twitter.com/MGjcM7JoXi
— B/R Football (@brfootball) 15 April 2019