Mohamed Salah, leikmaður Liverpool á Englandi, skoraði stórkostlegt mark í dag er liðið mætti Chelsea.
Leikurinn er enn í gangi þessa stundina en eftir 55 mínútur þá er staðan orðin 2-0 fyrir heimamönnum.
Sadio Mane kom Liverpool yfir snemma í fyrri hálfleik og bætti Salah við öðru stuttu seinna.
Egyptinn átti frábært skot fyrir utan teig sem hafnaði í markvinklinum og átti Kepa Arrizabalaga ekki möguleika.