Andrea Barzagli, varnarmaður Juventus, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 38 ára gamall.
Barzagli hefur unnið sjö deildarmeistaratitla í röð með Juventus og er sá áttundi á leiðinni.
Ítalinn fagnar 38 ára afmæli sínu bráðlega og verður þetta hans síðasta tímabil sem atvinnumaður.
Hann samdi við Juventus fyrir átta árum síðan og á að baki yfir 280 leiki fyrir félagið.
Barzagli var einnig ítalskur landsliðsmaður og vann HM með liðinu árið 2006.