Lionel Messi, leikmaður Barcelona á Spáni, ætti að ná fyrri leik liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni.
Messi meiddist í leik með argentínska landsliðinu á dögunum en liðið lék við Venesúela í æfingaleik,.
Messi er að glíma við nárameiðsli eftir þann leik en Argentína tapaði óvænt með þremur mörkum gegn einu.
Talað var um að Messi myndi missa af fyrri leiknum við United þann 10. apríl næstkomandi í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Samkvæmt nýjustu fregnum eru hins vegar engar líkur á að Messi verði frá og verður hann heill heilsu.