Samvkæmt erlendum miðlum eru forráðamenn Barcelona mættir til Amsterdam, þar ætlar félagið að reyna að kaupa Matthijs de Ligt, varnarmann Ajax.
De Ligt er með samning við Ajax til ársins 2021 en þessi ungi og öflugi miðvörður er eftirsóttur.
Liverpool hefur verið orðað við De Ligt sem er fyrirliði Ajax og lykilmaður í vörn hollenska landsliðsins.
Samband Ajax og Barcelona er gott en Börsungar hafa nú þegar keypt Frenkie De Jong frá félaginu, hann fer til Katalóníu í sumar.
Nú er sagt að De Ligt sé næstur í röðinni en Josep Maria Bartomeu, forseti Börsunga er í borginni. Talið er að De Ligt kosti um 60 milljónir punda.