Dejan Lovren, leikmaður Liverpool, sneri aftur á völlinn í dag með landsliði Króatíu.
Lovren hefur ekki spilað leik í tæplega þrjá mánuði en hann meiddist þann 7. janúar í leik gegn Wolves.
Hann var þó mættur í hjarta varnarinnar hjá Króatíu í dag sem spilaði við Ungverjaland í undakeppni EM.
Endurkoma Lovren var enginn draumur en Krótar töpuðu leiknum óvænt með tveimur mörkum gegn einu.
Þetta eru þó góðar fréttir fyrir Liverpool sem er enn á lífi í titilbaráttunni og í Meistaradeild Evrópu.