Zlatan Ibrahimovic, fyrrum framherji Manchester United er á því að United verði að sleppa takinu af Sir Alex Ferguson, hann hafi of mikil áhrif á allt í dag.
,,Allt sem gerist í dag er borið saman við tíma Ferguson,“ sagði Zlatan en United hefur ekki náð flugi eftir að Ferguson hætti árið 2013.
Þetta gagnrýna margir en Zlatan hefur einnig látið gamlar hetjur félagsins heyra það.
,,Lokaðu á þér þverrifunni Zlatan, og sýndu þeim sem voru í kringum Sir Alex Ferguson virðingu,“ sagði Martin Sammuel hjá Daily Mail.
,,Zlatan ætti að sýna þessum mönnum virðingu, þetta eru Scholes, Gary Neville, Ferdinand og Giggs.“
,,Ibrahimovic lék 53 leiki fyrir United, það eru ekki 13 deildar titlar eins og Giggs.“