Arjen Robben, leikmaður Bayern Munchen, hvetur Callum Hudson-Odoi til að ganga í raðir félagsins.
Hudson-Odoi er 18 ára gamall vængmaður en Bayern reyndi að fá hann í janúarglugganum.
Hann er ekki fastamaður í liði Chelsea og hefur nú verið valinn í enska landsliðshópinn fyrir komandi verkefni.
,,Hann er einn besti ungi leikmaður Evrópu. Þú verður betri ef þú færð tækifæri og ef þú færð svona tækifæri þá verðuru að taka það,“ sagði Robben.
,,Þetta er alltaf eins fyrir unga leikmenn. Fyrst, þá verðuru að taka stórt skref til að afreka eitthvað, að verða atvinnumaður í hæsta gæðaflokki, komast í liðið og vinna þér inn pláss.“
,,Þú verður að sanna þig leik eftir leik, tímabil eftir tímabil. Ekki vera ánægður þegar þú afrekar eitthvað lítið.“