Wayne Rooney, leikmaður DC United, hefur hrósað fyrrum samherja sínun hjá Manchester United, Marcus Rashford.
Rashford er enn aðeins að byrja ferilinn en er orðinn fastamaður í United og einnig í enska landsliðinu.
Rooney segir að sóknarmaðurinn sé góður í næstum öllu en veit hvar hann mætti bæta sig.
,,Hann er með smá af öllu. Hann er fljótur og sterkur. Það eina sem hann gæti unnið í eru skallarnir,“ sagði Rooney.
,,Hann er frábær. Hann er með svo mikil gæði og það er frábært að sjá hann gera svona vel. Hann á bjarta framtíð með Englandi og United.“