Jose Mourinho, stjóri Manchester United, fékk skilaboð frá Eden Hazard eftir að hafa verið rekinn frá Chelsea árið 2015.
Hazard og Mourinho unnu deildina saman með Chelsea tímabilið 2014/2015 en allt fór úrskeiðis ári seinna.
Chelsea tapaði níu af fyrstu 16 leikjum sínum í deildinni og var einu stigi frá fallsæti áður en Mourinho var látinn fara.
,,Ég sendi honum skilaboð þar sem ég sagðist vera vonsvikinn með að hann væri farinn og ég baðst svo afsökunar,“ sagði Hazard.
,,Við náðum þessum árangri saman en það var ekki eins á þessu tímabili. Ég taldi mig vera sekan því ég hafði verið valinn leikmaður ársins. Ég var einn af þeim sem gerði mest en svo stóð ég mig ekki eins vel.“