Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Peralada á Spáni:
Íslenska landsliðið æfði í annað sinn í Katalóníu nú í morgun en leikmenn liðsins komu saman í gær. Undirbúningur fyrir undankeppni EM er í fullum gangi.
Liðið æfir í Peralada á Spáni í dag og á morgun og heldur síðan til Andorra snemma á fimmtudag, þar er leikur gegn heimamönnum á föstudag.
Liðið heldur svo til Parísar á laugardag og mætir þar Frakklandi á mánudag í París. Heimsmeistarar Frakka, verða erfiðir við að eiga.
Frakkra heimsækja Moldóvu á föstudag og er krafan á að liðið vinni fyrstu tvo leikina sína.
Það er ansi létt yfir franska hópnum og var mikið um fíflagang á æfingu liðsins í dag eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Myndir af æfingunni eru hér að neðan.