Af heimasíðu ÍA:
Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA hefur framlengt núverandi samning við Jóhannes Karl Guðjónsson sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu fimm ára.
Jóhannes Karl er uppalinn hjá ÍA og hefur mikla reynslu sem leikmaður hér á landi og sem atvinnumaður erlendis með liðum á borð við Real Betis, AZ Alkmaar, Wolves, Burnley og Aston Villa.
Áður en Jóhannes Karl skrifaði undir samning við Knattspyrnufélag ÍA haustið 2017 hafði
hann stýrt HK við góðan orðstír.
Starf hans hjá ÍA hefur svo einkennst af miklum metnaði og sigurvilja sem hefur smitað út frá sér í öllu starfi félagsins.
„Ég er mjög ánægður með það mikla traust sem mér er sýnt með því að framlengja samninginn minn við ÍA sem þjálfari meistaraflokks karla,“ sagði Jói Kalli.
,,ÍA er félagið sem ég er alinn upp í og félagið sem ég hef alltaf litið á sem mitt félag og þar vil ég halda áfram að taka þátt í frábæru starfi. Framtiðin er björt í fótboltanum á Akranesi og framundan er metnaðarfullt uppbyggingarstarfi.“
Mikil ánægja hefur verið hjá ÍA með samstarfið við Jóhannes Karl og glæsilegt gengi síðastliðið sumar endurspeglar það, en þá vannst bæði sigur í Inkasso deild karla, en einnig varð 2.flokkur félagsins Íslandsmeistari.
Framundan eru spennandi tímar í knattspyrnunni á Akranesi þar sem byggt verður á gildum félagsins en þau eru metnaður, vinnusemi, þrautseigja, virðing og agi.