Franskir miðlar segja að Arsenal hafi rætt við andstæðinga sína í Rennes í síðustu viku eftir viðureign í Evrópudeildinni.
Arsenal tapaði 3-1 fyrir Rennes síðasta fimmtudag en liðin mætast svo aftur í kvöld í seinni leiknum í London.
Samkvæmt fregnum frá Frakklandi þá ræddi Arsenal við Rennes vegna vængmannsins Ismaila Sarr.
Sarr átti góðan leik fyrir Rennes í sigrinum í síðustu viku og skoraði til að mynda þriðja mark liðsins.
Arsenal athugar hvort Sarr sé fáanlegur næsta sumar en hann er mikilvægur í liði Rennes aðeins 21 árs gamall.
Hann hefur verið orðaður við önnur lið í vetur en Everton er á meðal þeirra sem hafa áhuga.