Erik Hamren landsliðsþjálfari Íslands hefur valið hóp sinn fyrir fyrsta verkefni liðsins í undankeppni EM. Liðið mætir Andorra á föstudag í næst viku og þremur dögum síðar er leikur við Heimsmeistara Frakka, í París.
Hamren á eftir að vinna sinn fyrsta leik í starfi en hann tók við síðasta haust. Emil Hallfreðsson, Jón Daði Böðvarsson og fleiri leikmenn eru frá vegna meiðsla.
Alfreð Finnbogason er í hópnum en ef hann spilar ekki með Augsburg í þýsku úrvalsdeildinni um helgna, er óvíst með þáttöku hans. Alfreð hefur ekki spilað vegna meiðsla síðustu vikur. Lítið óvænt er i vali en Kolbeinn Sigþórsson er ekki í hópnum, Hamren hefur bara tvo hreinræktaða framherja í sínum hópi. Það vekur athygli, sérstaki í ljós þess að Alfreð er ekki heill heilsu.
Hamren vonar að Alfreð spili um helgina en vonir standa til þess að hann verði klár í slaginn.
Smelltu hér til að sjá hópinn.
,,Það held ég ekki, við erum með Albert sem getur spilað sem framherji. Sagan um Alfreð er góð, hann hefur æft að fullu og spilar líklega á laugardag. Ég ligg á bæn um að allt verði í lagi,“ sagði Hamren.
,,Ég hef Gylfa sem getur spilað þarna. Fótboltinn í dag snýst um að liðið skori en ekki bara framherjar, þetta er ekki hætta.“