Philippe Coutinho, leikmaður Barcelona, hefur legið undir mikilli gagnrýni undanfarna mánuði.
Coutinho hefur ekki þótt standa undir væntingum á Spáni síðan hann kom frá Liverpool í fyrra.
Þessi 26 ára gamli leikmaður spilaði og skoraði fyrir Barcelona í gær í öruggum 5-1 sigri á Lyon.
Eftir leik var hann spurður út í framtíðina og útilokar Brassinn ekki að yfirgefa félagið í framtíðinni.
,,Ég kom til Barcelona til að gera mitt besta,“ sagði Coutinho eftir leikinn í gær.
,,Þú veist aldrei hvað gerist í framtíðinni. Ég er ánægður með mína frammistöðu.„