David De Gea markvörður Manchester United hefur átt í viðræðum við félagið um nýjan samning um langt skeið. De Gea vill verða launahæsti leikmaður félagsins.
Alexis Sanchez er með 350 þúsund pund í föst laun á viku en De Gea fer fram á meira.
Sagt er að stjórnarmenn United séu efins um það enda yrði hann lang launahæsti markvörður í heimi.
Þá er það talið áhyggjuefni að De Gea hefur ekki átt sitt besta tímabil, hann vera minna af skotum, heldur sjaldnar hreinu og mörkin leka inn hreðar en áður.
Þá gerir De Gea stór mistök miklu oftar á þessu tímabili en hann hefur áður gert.
Tölfræði um þetta er hér að neðan.