fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Ronaldo gæti átt von á refsingu

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 13. mars 2019 17:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, gæti átt von á refsingu frá UEFA eftir hegðun sína í gær.

Ronaldo skoraði þrennu í 3-0 sigri Juventus á Atletico Madrid og kemur það liðinu í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Eftir leikinn var Portúgalinn gríðarlega ánægður og gerði grín að Diego Simeone, stjóra Atletico.

Simeone fagnaði vel eftir fyrri leik liðanna í Madríd en hann greip í klofið á sér og ögraði þannig stuðningsmönnum og leikmönnum gestaliðsins.

Simeone fékk væna sekt frá UEFA eftir þessa hegðun og gæti Ronaldo nú fengið svipaða refsingu.

Simeone sagði eftir leikinn að hann hafi verið að sýna stuðningsmönnum að hans leikmenn væru með eistun í að klára svona verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“