Það er rosalegur leikur í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar Liverpool heimsækir FC Bayern í Meistaradeld Evrópu. Um er að ræða síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum.
Fyrri leiknum á Anfield lauk með markalausu jafntefli og því er allt opið fyrir einvígið í kvöld.
Bayern er erfitt heim að sækja en Liverpool tapar ekki oft og því er erfitt að lesa í leikinn.
Trent Alexander-Arnold bakvörður Liverpool er tæpur en vonast er til að hann geti tekið þátt í leiknum.
Sami Hyypiä fyrrum varnarmaður Liverpool er mættur til Munchen til að fylgjast með leiknum og hann fór og heimsótti Virgil van Dijk miðvörð liðsins í dag.
Hyypiä átti frábæran feril hjá Liverpool og eru margir stuðningsmenn Liverpool á því að hann og Van Dijk hefðu orðið hið fullkomna miðvarðar par.
,,Frábær drengur,“ skrifaði þessi fyrrum leikmaður Liverpool við myndina af sér og Van Dijk sem sjá má hér að neðan.