Fulham þarf nauðsynlega á stigum að halda í kvöld er liðið mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni.
Fulham er í fallsæti með 17 stig fyrir leikinn í kvöld og er heilum átta stigum frá öruggu sæti.
West Ham situr í 10. sæti deildarinnar en hefur ekki unnið leik í síðustu fjórum umferðum. Manuel Lanzini er mættur aftur í lið West Ham eftir erfið meiðsli en hann er á bekknum.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
West Ham: Fabianski, Cresswell, Zabaleta, Diop, Ogbonna, Noble, Antonio, Rice, Snodgrass, Anderson, Hernandez.
Fulham: Rico, Sessegnon, Odoi, Chambers, Ream, Nordveit, Bryan, Seri, Cairney, Babel, Mitrovic.